Flokkar sem hefjast á A
Arne Jacobsen Watch (by Rosendahl) (9)
Þegar minnst er á danska arkitektinn og hönnuðinn Arne Jacobsen (1902-1971) koma strax upp í hugann hlutir eins og Eggið, Svanurinn, Sjöan, Maurinn og fjöldi annarra einstakra muna meistarans.
Árið 1942 hannaði Arne Jacobsen Roman veggklukkuna fyrir ráðhúsið í Aarhus, árið 1956 fylgdi í kjölfarið hönnun á City Hall veggklukkunni fyrir ráðhúsið í Rødovre. Fimmtan árum síðar hannaði Arna Jacobsen svo Bankers veggklukkuna fyrir Seðlabanka Danmerkur.
Í dag eru þessar klukkur vel þekkt tákn fyrir húsin sem þær eru í og eru til marks um framsækna hönnun Arne Jacobsen.
Árið 2009 endurskapaði hönnunarteymi Rosendahl þessar þekktu klukkur Arne Jacobsen sem armbandsúr með fullu samþykki og í samvinnu við afkomendur hans. Markmiðið var að fanga þann anda sem Arne Jacobsen lagði í hönnun sína. Afraksturinn er Arne Jacobsen Watch frá Rosendahl.
Auguste Reymond (4)
Í kyrrlátu þorpi langt inni í Júrafjöllunum, hjarta úraiðnaðarins í Sviss, hafa Auguste Reymond úrsmiðirnir búið til úr í meira en öld eða frá 1898. Þetta fjölskyldufyrirtæki býður upp á vönduð mekanísk úr í bland við rafhlöðuknúin úr. Trúir hefðinni, þá er vinnan ósvikin, enn þann dag í dag eru úrin sett saman í höndunum hjá Auguste Reymond fagmönnunum, úrsmiðum með þá sérþekkingu og hæfni sem aðeins reynslan hefur kennt þeim og gengið hefur áfram mann fram af manni, kynslóð eftir kynslóð.
Auguste Reymond eru kjörin úr fyrir safnara, þeir hafa í nokkur skipti sérframleitt ákveðin úr í 999 númeruðum eintökum sem gerir úrin að verðmætri eign.
ARSA - Úr fyrir sjóndapra (6)
Í yfir fjörtíu ár hafa Auguste Reymond úraframleiðendurnir framleitt sérstök úr fyrir blinda og sjóndapra í samvinnu við samtök blindra og sjóndapra í Sviss undir nafninu ARSA. Þetta eru vönduð svissnesk úr sett saman í höndunum af úrsmiðum Auguste Reymond. ARSA úrin eru högg- og vatnsvarin með hertum glerjum. Verð úranna er ákaflega hagstætt þar sem því er haldið niðri til að auðvelda þeim sem á þurfa að halda að kaupa úrin.
asa (29)
Skartgripalínan asa er hönnuð af gullsmiðnum Ásu Gunnlaugsdóttur. Skargripalínan samanstendur af fallegum hlutum sem kallast á við íslenska náttúru og veðurfar með hönnun og nafngift.
Arne Jacobsen (10)
Árið 1942 hannaði danski arkitektinn og hönnuðurinn Arne Jacobsen Roman veggklukkuna fyrir ráðhúsið í Aarhus, árið 1956 fylgdi í kjölfarið hönnun á City Hall veggklukkunni fyrir ráðhúsið í Rødovre. Fimmtan árum síðar hannaði Arna Jacobsen svo Bankers veggklukkuna fyrir Seðlabanka Danmerkur.
Arne Jacobsen hafði það sem venju að hanna allt frá byggingunni til skrautmuna innanhús og í dag eru þessar klukkur vel þekkt tákn fyrir húsin sem þær eru í. Þær þykja einnig sýna vel þá þróun sem varð í hönnun Arne Jacobsen á þessu tímabili.
Árið 2009 fékk Rosendahl leyfi afkomenda Arne Jacobsen til að framleiða klukkur undir hans nafni og í framhaldinu endurskapaði hönnunarteymi Rosendahl þessar þekktu klukkur Arne Jacobsen. Markmiðið var að fanga þann anda sem Arne Jacobsen lagði í hönnun sína. Úkoman eru stórglæsilegar klukkur sem standa fyrirmyndunum fyllilega samanburð.





