Rolex

www.rolex.com

Velkomin í veröld þar sem sígild hönnun og hæstu gæði sameinast í einu úri.
Allt frá upphafi hefur aðalsmerki Rolex verið gríðarlegar kröfur um fagmennsku. Þar fer saman í sífelldri framþróun færni, nákvæmni og sérfræðiþekking úrsmiðanna sem skapa með bestu úrverkum heims, svo og mestu gæði í hráefnum þar sem eingöngu er notað 18 kt gull, platína eða hágæðastál í úrkassa og úrarmbönd. Frábær hönnun sem sameinast í hágæða meistarasmíð.  Oft eru sjaldgæf módel til í versluninni, t.d. Rolex Daytona steel og Rolex Submariner Ceramic.
Genuine Rolex úr eru aðeins seld í gegnum viðurkennda Rolex söluaðila (Authorised Rolex Dealers). Rolex úr eru ekki seld á þessari síðu heldur aðeins í gegnum verslun Michelsen úrsmiða, til að vernda viðskiptavini.

Romain Jerome

www.romainjerome.ch

Slagorð Romain Jerome er „DNA þekktra goðsagna“ enda byggir fyrirtækið á því að nota óvenjulegt hráefni sem e.k. góðmálma í úrin sín. Í dag framleiða þeir úr með ryðguðu stáli og kolum úr Titanic, úr með tunglryki og stáli úr Apollo 11 geimflauginni, sem lenti fyrst á tunglinu, og ein nýjasta viðbótin er úr með ösku úr Eyjafjallajökli og hrauni úr Fimmvörðuhálsi.
Öll úrin eru framleidd í Sviss í takmörkuðu, númeruðu upplagi sem einnig vísar til atburðanna.

Tudor

www.tudorwatch.com

„Í mörg ár hef ég hugleitt að stofna úramerki sem umboðsmenn okkar geta selt á hóflegra verði en Rolex úrin okkar, og munu engu að síður uppfylla gæðastaðalinn fyrir áreiðanleika sem Rolex er frægt fyrir. Nú hef ég ákveðið að stofna nýtt fyrirtæki, með það að markmiði að framleiða og markaðssetja þetta nýja úramerki. Það nefnist Tudor.“ -Hans Wilsdorf, stofnandi Rolex, 6. mars 1946.
Tudor eru ekki seld á þessari síðu heldur aðeins í gegnum verslun Michelsen úrsmiða, til að vernda viðskiptavini.

Arne Jacobsen Watch (by Rosendahl)

www.rosendahl-watches.com

Þegar minnst er á danska arkitektinn og hönnuðinn Arne Jacobsen (1902-1971) koma strax upp í hugann hlutir eins og Eggið, Svanurinn, Sjöan, Maurinn og fjöldi annarra einstakra muna meistarans.
Árið 1942 hannaði Arne Jacobsen Roman veggklukkuna fyrir ráðhúsið í Aarhus, árið 1956 fylgdi í kjölfarið hönnun á City Hall veggklukkunni fyrir ráðhúsið í Rødovre. Fimmtan árum síðar hannaði Arna Jacobsen svo Bankers veggklukkuna fyrir Seðlabanka Danmerkur.

Í dag eru þessar klukkur vel þekkt tákn fyrir húsin sem þær eru í og eru til marks um framsækna hönnun Arne Jacobsen.
Árið 2009 endurskapaði hönnunarteymi Rosendahl þessar þekktu klukkur Arne Jacobsen sem armbandsúr með fullu samþykki og í samvinnu við afkomendur hans. Markmiðið var að fanga þann anda sem Arne Jacobsen lagði í hönnun sína. Afraksturinn er Arne Jacobsen Watch frá Rosendahl.

Auguste Reymond

Í kyrrlátu þorpi langt inni í Júrafjöllunum, hjarta úraiðnaðarins í Sviss, hafa Auguste Reymond úrsmiðirnir búið til úr í meira en öld eða frá 1898. Þetta fjölskyldufyrirtæki býður upp á vönduð mekanísk úr í bland við rafhlöðuknúin úr. Trúir hefðinni, þá er vinnan ósvikin, enn þann dag í dag eru úrin sett saman í höndunum hjá Auguste Reymond fagmönnunum, úrsmiðum með þá sérþekkingu og hæfni sem aðeins reynslan hefur kennt þeim og gengið hefur áfram mann fram af manni, kynslóð eftir kynslóð.
Auguste Reymond eru kjörin úr fyrir safnara, þeir hafa í nokkur skipti sérframleitt ákveðin úr í 999 númeruðum eintökum sem gerir úrin að verðmætri eign.

Charmex

www.charmex.ch

Montres Charmex var stofnað árið  1946 af Max Bürgin, sem var velþekktur úrsmiður í Sviss. Charmex er nú í eigu sonar og sonarsonar Max Bürgins og eru flestir starfsmennirnir fjölskyldumeðlimir eða tengdir Bürgin fjölskyldunni. Saga Charmex fyrirtækisins er svipuð og Michelsen sagan: Ungur úrsmiður með hugsjón og mikinn metnað stofnar fyrirtæki og er mörgum áratugum seinna vel metið fyrirtæki í sífelldri þróun, alltaf að leita að nýjum tækifærum og með vilja til að gera alltaf betur. Charmex bjóða upp á bæði rafhlöðuknúin úr og vönduð sjálftrekkt úr, klassísk módel og sport módel.

Jacques Lemans

www.jacques-lemans.com

Jacques Lemans er einn stærsti úraframleiðandi Austurríkis. Úrin eru vönduð en jafnframt á einstaklega góðu verði. Hvort sem þú leitar að klassísku úri eða sportlegu finnurðu það frá Jacques Lemans.

Úrval af Jacques Lemans Sport og Formula 1 úrum má finna hér.

Jacques Lemans Formula 1

www.jacques-lemans.com

Formula 1 úrin frá Jaques Lemans eru töff sportúr. Hönnun úranna minnir á það besta úr Formula 1 - hraða, spennu, dirfsku og ögrun.
Koltrefjar, titanium, stál og gúmmi eru meðal þeirra efna sem Jaques Lemans notar í Formula 1 úrin.

Úrval af Jacques Lemans klassískum úrum má finna hér.

Lancaster Italy

www.lancasteritaly.com

Lancaster Italy er gæðamerki sem býður upp á hátískuúr í mjög breiðri línu í herra og dömu stærðum. Fyrir þá sem kjósa eftirtektarverð úr eru Lancaster úrin fullkomin því mörg þeirra eru alsett demöntum, allt að 289 demanta! Lancaster þora því sem aðrir framleiðendur þora ekki. Stórglæsileg úr fyrir fólk sem þorir að vera öðruvísi.

Movado

www.movado.com

List í tíma. Velkomin í margverðlaunaða sögu glæstrar hönnunar.
Movado var stofnað árið  1881. Nafnið kemur úr esperanto og merkir sífellt á  hreyfingu. Mikill metnaður og framsækni einkennir sögu Movado þar sem margverðlaunuð hönnun og nýsköpun í tækni tímamælinga hefur dregið að sér á annað hundrað verðlauna. Eitt þekktasta úr Movado er The Museum Watch, fyrst framleitt árið 1947 og er enn í mikilli sölu um allan heim. Movado er ekki síður þekkt í listaheiminum vegna tengsla og stuðning við listamenn. Mikla athygli vakti úr framleidd í númeruðum eintökum sérhönnuð af heimsþekktum listamönnum þar sem m.a. Andy Warhol var fyrstur í röð margra frábærra listamanna með módel sitt New York, New York.

Rosendahl

www.rosendahl-watches.com

Flott og töff útlit birtist í  armbandsúrunum frá Rosendahl sem hönnuð eru af Flemming Bo Hansen, dönskum gullsmið og hönnuði. Úrin eru slétt og felld, hrein og bein, gera aðeins það sem af þeim er til ætlast; að sýna tímann. Og svo skemmir verðið ekki fyrir….

TW Steel - yfirstærðar úr

www.twsteel.com

Stærðin skiptir máli! Láttu ekki segja þér annað. TW Steel eru stór. Stór úr eru málið í dag. Skoðaðu TW Steel.

Zeno-Watch Basel

www.zeno-watch.ch

Zeno Watch hafa verið leiðandi í framleiðslu sjálfvindu og trekktra flugmannaúra og úra í yfirstærð allt frá árinu 1922.
Úrin frá Zeno-Watch Basel eru gerð með nýjustu tækni en útlitið minnir á tvíþekjur og hetjur háloftanna sem flugu á bernskudögum flugsins jafnt sem hátækni þotur og flugmenn nútímans.

ARSA - Úr fyrir sjóndapra

Í yfir fjörtíu ár hafa Auguste Reymond úraframleiðendurnir framleitt sérstök úr fyrir blinda og sjóndapra í samvinnu við samtök blindra og sjóndapra í Sviss undir nafninu ARSA. Þetta eru vönduð svissnesk úr sett saman í höndunum af úrsmiðum Auguste Reymond. ARSA úrin eru högg- og vatnsvarin með hertum glerjum. Verð úranna er ákaflega hagstætt þar sem því er haldið niðri til að auðvelda þeim sem á þurfa að halda að kaupa úrin.

Notuð úr - umboðssala

Vinsamlega athugið! Hér er aðeins sýndur hluti þeirra notuðu úra sem eru til sölu hjá Michelsen úrsmiðum.

Michelsen úrsmiðir selja í umboðssölu notuð úr fyrir eigendur úranna.
Breytilegt er á hverjum tíma hvað er í boði af notuðum úrum, en sem dæmi um merki sem við höfum selt í umboðssölu er Rolex, Patek Phillippe, Tag Hauer, Omega, Breitling, Cartier, Movado og IWC.
Michelsen úrsmiðir eru milliaðili milli seljanda og kaupanda og bera ekki ábyrgð á viðskiptunum eða ástandi úranna. Við ráðleggjum kaupendum að skoða hlutina vel fyrir kaup eða kaupa ástandsskoðun á úrinu af Michelsen úrsmiðum.

Pre-owned watches

Michelsen watchmakers sell pre-owned watches for the current owners. It's varies from time to time what types of watches we can offer pre-owned so please check regularly.