Charmex
www.charmex.ch
Montres Charmex var stofnað árið 1946 af Max Bürgin, sem var velþekktur úrsmiður í Sviss. Charmex er nú í eigu sonar og sonarsonar Max Bürgins og eru flestir starfsmennirnir fjölskyldumeðlimir eða tengdir Bürgin fjölskyldunni. Saga Charmex fyrirtækisins er svipuð og Michelsen sagan: Ungur úrsmiður með hugsjón og mikinn metnað stofnar fyrirtæki og er mörgum áratugum seinna vel metið fyrirtæki í sífelldri þróun, alltaf að leita að nýjum tækifærum og með vilja til að gera alltaf betur. Charmex bjóða upp á bæði rafhlöðuknúin úr og vönduð sjálftrekkt úr, klassísk módel og sport módel.




