Michelsen Reykjavík 64°N/22°W

Lýsing:

Það er með stolti sem Michelsen úrsmiðir kynna nýja línu af Michelsen armbandsúrunum:

Reykjavík 64°N/22°W, er nefnt eftir opinberri staðsetningu Reykjavíkur í lengdar- og breiddargráðum.

Reykjavík 64°N/22°W er með vönduðu mekanísku sjálfvinduúrverk, 316L stálkassa með rispufríu safírgleri.
Svört, steingrá eða silfur skífa og 15 mismunandi handgerðar leðurólar í boði.
Úrin eru sérframleidd í númeruðu og takmörkuðu upplagi.

Verð kr.: 157.000,-