Í stórri og aðgengilegri verslun sinni á Laugavegi 15, bjóða Michelsen úrsmiðir uppá eitt glæsilegasta úrval landsins af armbandsúrum á öllum verðum. Mörg heimsþekkt merki má finna í verslun Michelsen, þ.á.m. Rolex og Movado ásamt fleirum gæðamerkjum á borð við Charmex, Rosendahl, Swiss Military og Seculus. Sömuleiðis er í boði frábært úrval af mekanískum úrum frá Auguste Reymond og Zeno Watch ásamt nýja Michelsen úrinu. Ótal merkjaúr má finna hjá Michelsen, t.d. Armani, Dolce & Gabbana, Diesel og DKNY o.fl.

Í skarti bjóða Michelsen uppá gott úrval af handsmíðuðum íslenskum skartgripum í gulli og silfri á frábærum verðum. Flott íslensk hönnun frá Ásu og Valda. Hinir heimsfrægu skartgripir frá Georg Jensen eru einnig í boði hjá Michelsen, stílhrein og töff dönsk hönnun í ýmist 18 kt gulli með demöntum og öðrum eðalsteinum ásamt ýmsum línum í silfri gera Georg Jensen að góðri eign.   Starfsmenn Michelsen veita þér og þínum faglega og persónulega þjónustu.

Mikil reynsla og þekking.

Veldu gæði. Veldu Michelsen.