
Michelsen úrsmiðir reka elstu úrsmíðavinnustofu landsins þar sem þeir bjóða uppá alhliða viðgerðarþjónustu í úrum og klukkum og bjóða að auki uppá viðgerðir á skartgripum. Mikil reynsla og þekking sem hefur erfst mann fram af manni, kynslóð eftir kynslóð, skín í gegn með faglegri og persónulegri þjónustu. Aðalsmerki Michelsen úrsmiða eru vönduð vinnubrögð, framsækni, metnaður og fagmennska sem skilar sér í því góða orðspori sem af þeim fer. Úrsmiðir fyrirtækisins, Frank Úlfar og Róbert, geta báðir státað af því að hafa menntað sig hjá hinum heimsþekkta WOSTEP úrsmíðaskóla í Neuchatel í Sviss, sem er leiðandi í kennslu á sviði úrsmíði um heim allan.
Veldu gæði. Veldu Michelsen.






