|
|
Allt til ársins 1909 nær saga Michelsen úrsmiða en þá stofnaði fyrsti Michelsen úrsmiðurinn fyrirtæki sitt á Sauðárkróki. Saga Michelsen úrsmiðanna er löng og samofin iðnaðarsögu Íslendinga síðastliðna öld og eru þeir þekktir fyrir fagmannleg vinnubrögð í verslun sinni sem og á úrsmíðavinnustofunni. Hér verður rakin í stuttu máli saga frumkvöðla og dugmikilla úrsmiða af Michelsen ættinni. Árið 1907 kom Friðrik VIII konungur Danmerkur í opinbera heimsókn til Íslands og með í föruneyti konungs var ungur úrsmiður frá Danmörku, J. Frank Michelsen (1882-1954), er varð eftir á Íslandi og settist að á Sauðárkróki. Árið 1909 stofnaði J. Frank Michelsen sitt eigið fyrirtæki með úr, klukkur og skartgripi á Sauðárkróki. Þar framleiddi J. Frank m.a. vasaúr í hátt í þrjá áratugi er báru nafn hans sem og að veita þjónustu á sviði úrsmíði og gullsmíði. |
Einn sona hans, Franch Michelsen (1913-2009), lærði úrsmíði hjá föður sínum og fór að því búnu til frekara náms til Kaupmannahafnar árið 1937 þar sem hann útskrifaðist með hæstu einkunn, "ultra godt". Að námi loknu starfaði hann hjá Carl Jonsén, konunglegum hirðúrsmið í Kaupmannahöfn. Þar sá hann um að gera við úr er komu frá danska aðlinum og hirðinni, m.a. gerði hann við úr Alexandrinu Danadrottningar og bauðst að verða útnefndur konunglegur hirðúrsmiður. Er Þjóðverjar hertóku Danmörku 1940 hélt hann heim til Íslands með svokallaðri Petsamo-ferð og árið 1943 opnaði hann aðra verslun í Reykjavík, en J. Frank átti ennþá og rak verslunina á Sauðárkróki. Verslanirnar sameinuðust árið 1946 er J. Frank flutti til Reykjavíkur og störfuðu Michelsen feðgarnir saman þar til J. Frank féll frá árið 1954. Undir styrkri handleiðslu Franchs nutu tólf úrsmiðanemar þekkingar hans í verknámi sínu en alls hefur fyrirtækið útskrifað 15 úrsmiði.
Þriðji ættliðurinn, Frank Úlfar Michelsen (fæddur 1956), hóf úrsmíðanám hjá föður sínum samhliða úrsmíðanámi í Iðnskólanum í Reykjavík. Frank lauk námi sínu hjá WOSTEP í Neuchâtel í Sviss árið 1978, fyrstur Íslendinga, en WOSTEP er fremsti úrsmíðaskóli heims í dag. Eftir árangursríka dvöl í Sviss sneri hann heim og starfaði um árabil með föður sínum og tók við rekstri fyrirtækisins árið 1992 þegar Franch þurfti að draga úr vinnu vegna veikinda. Frank Úlfar hefur starfað að framgöngu úrsmíðafagsins, m.a. sem stjórnarmaður, ritari og loks formaður Úrsmiðafélags Íslands árin 2000-2005. Frank keypti fjölskyldufyrirtækið árið 1999 á 90 ára afmæli þess.
Fjórði ættliðurinn og einn sona Franks, Róbert F. Michelsen (fæddur 1984) nam úrsmíði hjá föður sínum samhliða framhaldsskólanámi og fór árið 2007 í strangt tveggja ára nám hjá WOSTEP í Sviss þar sem hann útskrifaðist á 100 ára afmæli fyrirtækisins, með hæstu einkunn. Þar lærði hann allt það helsta sem þessi fíngerða og nákvæma iðn hefur uppá að bjóða og m.a. hannaði Róbert og endursmíðaði vasaúr með allsérstakri hönnun sem vakti töluverða athygli í Sviss og á Íslandi sumarið 2009.
Allt frá upphafi hefur aðalsmerki Michelsen úrsmiðanna verið vönduð vinnubrögð, metnaður, framsækni og fagmennska sem hefur erfst mann fram af manni, kynslóð eftir kynslóð. Á þessum 100 árum hafa Michelsen úrsmiðirnir selt og þjónustað mörg af þekktustu úramerkjum heims með Rolex þar fremst í flokki. Þeim hefur verið treyst fyrir afar vönduðum úrum hvaðanæva að úr heiminum og orðspor þeirra hefur farið víða.
Franch Michelsen ehf er búið að vera í eigu sömu fjölskyldu alla tíð og stendur traustum fótum sem aldrei fyrr. Það er með bjartsýni og ánægju sem Michelsen, úrsmiðir í 100 ár, halda áfram að hjálpa Íslendingum að fylgjast með tímanum. 100 ár er langur tími einnar verslunar á Íslandi og við erum þakklát fyrir að hafa verið til staðar svo lengi sem raun ber vitni – og er það viðskiptavinum Michelsen að þakka undanfarin 100 ár.
Þann 1. des kom einnig á markað Michelsen úr, framleidd á ný eftir 70 ára hlé. Afmælisúr Michelsen úrsmiða voru sérframleidd í Sviss í númeruðu og takmörkuðu upplagi.
Í tilefni þess er 100 ár voru frá stofnun fyrirtækisins, var markaðsnafni Franch Michelsen ehf breytt í MICHELSEN og nýtt lógó tekið í gagnið - til marks um nýja tíma fyrirtækisins. Ástæða nafnabreytingarinnar er sú að Michelsen eitt og sér er sterkara markaðsnafn, bæði erlendis sem og hérlendis, en sem tveggja orða nafn. Nafnið hefur þróast á erlendri grundu sem Michelsen watchmakers og það er ein af ástæðum þess að áhersla verður lögð eingöngu á Michelsen nafnið – til þess að vega á móti erlendum viðskiptum. Að auki er allt að helmingur viðskiptavina Franch Michelsen ehf á Íslandi erlendir ferðamenn og í alþjóðlegu viðskiptasamfélagi eins og við lifum í í dag þá er nauðsynlegt að vera með gott og sterkt nafn sem lifir í minningu fólks, bæði Íslendinga og útlendinga.
Engar breytingar voru gerðar á rekstrarformi Franch Michelsen ehf við þessa breytingu á markaðsnafni. Fyrirtækið er rekið áfram á sömu kennitölu, sama nafni í þjóðskrá og í eigu sömu fjölskyldu.








