Fróðleikur

Fyrsta úrið sem kostaði minna en 20 dollara eða um 1.400 krónur kom á markað árið 1976 og var það frá bandaríska fyrirtækinu Texas Instruments.

Rolex Explorer var fyrsta úrið til að fara upp á topp Everest fjalls. Það var Sjerpinn Tenzing Norgay sem bar Rolex Explorer á hendinni þann 29. maí 1953 þegar hann og Edmund Hillary komust á toppinn. Við það tækifæri sagði Tenzing Norgay: "Members of the team have indeed come to look upon Rolex Oysters as an important part of high climbing equipment."

Árið 1960 smíðaði Rolex sérstaklega úr sem átti að komast niður á 10.000 metra dýpi. Úrið var fest á lítinn fjarstýrðan djúpsjávarkafbát og endaði á 10.910 metra dýpi eða 35.787 fetum í Maríönu djúpinu í Kyrrahafi. Það met hefur enn ekki verið slegið. Þess má til gamans geta að úraframleiðandinn Charmex sem smíðar Swiss Military úrin, framleiða kafara úr fyrir sem komast niður á 12.000 feta dýpi eða 3.657 metra.

Demantar eru sagðir fágætustu og verðmætustu eðalsteinar heims. Þeir eru tákn um ást, ríkidæmi, fegurð. Nauðsynlegt er að hafa einhverja þekkingu á demöntum þegar þeir eru keyptir, hvort sem er í skartgrip eða stakir sem fjárfesting.Í þessum fróðleiksmola er fjallað stutt um mun á hreinleika, litumun og skurð demanta.

Nánar...

Hvað þýðir "carat" og hver er munurinn?

Hreint gull er skilgreint sem "24 carat" og er frekar mjúkur málmur í eðli sínu. Því er gulli oftast blandað saman við aðra mála til að gera það sterkara og ódýrara. 18 carat þýðir að 18 hlutar af 24 eru gull, eða 75% hreint gull.

Hvað er hvítagull?

Hvítagull er búið til með því að blanda saman gulu gulli við hvíta málma. Það er oft húðað með Rhodium til að gefa því glansandi og glitrandi áferð.

Hvað er Platínum?

Platínum er hvítur málmur sem er mjög sjaldgæfur og jafnvel verðmætari en gull. Platínum er jafnframt harðari málmur en gull og því erfiðari að vinna með. Ólíkt hvítagulli þarf aldrei að húða Platínum, heldur nægir að pússa málminn og hann verður aftur glansandi og glitrandi.