1. mars 1965 var Omega Speedmaster fyrsta úrið til að fara út í geim og hefur verið notast við Omega allt frá því, bæði af NASA og rússnesku geimvísindastofnuninni. Úrið sem fór í geiminn árið 1965 þurfti að þola ótrúlegustu hluti, meðal annars þyngdarleysi, rafsegulsvið, þung högg, hristing og hitabreytingu frá 18 stiga frosti til 93 stiga hita á Celsíus. Það var einstaklega krefjandi verkefni sem Omega leysti vel af hendi. Það má segja að Omega Speedmaster sé mest prófaða úr heimsins vegna hindrananna sem það átti að komast yfir.






